2013-02-27 23:00:00 CET

2013-02-27 23:00:03 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
HS Orka hf - Ársreikningur

Ársreikningur 31.12.2012


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag ársreikning fyrirtækisins fyrir
árið 2012. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Ársreikninginn má finna á
vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði ársreikningsins eru þessi:

·EBITDA er áfram öflug og er alls um 2.857 m.kr. 2012 en var 2.678 árið 2011.

·Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í árslok 2012 eða um 53%. Á árinu nýtti
Jarðvarmi slhf. rétt sinn til að auka hlut sinn í HS Orku úr 25% upp í 33,4%,
vegna þessa jókst eigið fé um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé greitt inn í
lok febrúar 2012. 

·Hagnaður fyrir skatt er 707 milljónir á móti tapi upp á 1.160 milljónir árið
2011. Tekjuskattur er 107 milljónir, sem gerir að hagnaður eftir skatt er 600
milljónir.  Orkuver félagsins voru endurmetin í lok ársins og nemur
heildarverðmæti þeirra að endurmati loknu 31,5 milljarði, sem er
endurmatshækkun upp á 6,1 milljarð.  Þetta gerir að heildarhagnaður að
frádregnum skattaáhrifum endurmatsins er 5,5 milljarðar. 

·Þrátt fyrir gott EBITDA lækka tekjur um 7% eða um 550 m.kr. og námu 6.881 
m.kr. á árinu en voru 7.431 m.kr. árið 2011. Að sama skapi lækkar
rekstrarkostnaður um 8% eða sem nemur 380 m.kr. milli árana Nokkrar ástæður eru
fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á álverði, en stærst vegur hins vegar
að samningur um sölu á 35 Mwe til Norðuráls Grundartanga rann út 1. október
2011. Á móti því kemur að samningur við Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann
út nú um síðustu áramót. Mismunurinn (27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur
á almennum markaði en þar er nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður
lækkar síðan þar sem ekki er lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til
Norðuráls en jafnvirði þess kostnaðar var áður hluti teknanna. 

·Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860
5208.