2021-04-09 15:18:34 CEST

2021-04-09 15:18:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Festi hf. - Innherjaupplýsingar

Festi hf.: Samkaup kaupa tvær verslanir af Krónunni


Kaupsamningur hefur verið undirritaður um kaup Samkaupa á tveimur verslunum Krónunnar, annars vegar Kjarval á Hellu en hins vegar Krónunni Nóatúni 17, Reykjavík. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð verslananna er trúnaðarmál.
Krónan er sem kunnugt er dótturfélag Festi og eru viðskiptin liður í að uppfylla skilyrði sáttar á milli Festi og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Festi, áður N1, á Krónunni og fleiri félögum.
Samkaup áforma að opna verslun undir merkjum Kjörbúðar á Hellu og bætist verslunin þar með í hóp 15 annarra Kjörbúða sem reknar eru um allt land. Í Nóatúni 17, Reykjavík, áforma Samkaup að opna Nettó lágvöruverslun.
”Þetta eru spennandi tímar og það leggst vel í okkur að opna nýja búð á Hellu, um leið og við fjölgum Nettó-verslunum okkar í Reykjavík,” segir Ómar Valdimarsson, forstjóri Samkaup hf.
”Við eigum ekki von á öðru en að salan gangi eftir, þannig að kvöð sem á okkur hefur hvílt, samkvæmt sátt við Samkeppniseftirlitið, um að selja verslunareiningu frá okkur á Hellu til annars aðila, falli niður. Við höfum á þriðja ár, bæði í opnum og lokuðum söluferlum, freistað þess að uppfylla skilyrðið, en án árangurs, aðallega vegna andstöðu nærumhverfisins við breytingar. Þetta eru viðskipti sem við hjá Festi og Krónunni eru mjög sátt við”, segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Nánari upplýsingar gefur Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf. eggert@festi.is