2023-03-20 17:30:00 CET

2023-03-20 17:30:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 11


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 11. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti að kaupverði 58.800.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
13/3/2309:51150.00077,5011.625.00021.152.695
13/3/2314:20150.00077,5011.625.00021.302.695
15/3/2313:05150.00079,0011.850.00021.452.695
15/3/2314:18150.00079,0011.850.00021.602.695
16/3/2310:49150.00079,0011.850.00021.752.695
Samtals 750.000 58.800.00021.752.695


Reitir hafa nú keypt samtals 4.252.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 70,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 357.307.143 kr. sem samsvarar 65,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 21.752.695 eigin hluti, eða um 2,85% af heildarhlutafé félagsins. Af þeirri fjárhæð voru 17.500.000 hlutir keyptir undir endurkaupaáætlunum síðasta árs en þeim lauk þann 19. desember sl. Aðalfundur félagsins þann 8. mars sl. samþykkti að lækka útgefið hlutafé félagsins um þá fjárhæð og er skráning hennar nú í lögformlegu ferli. Að teknu tilliti til lækkunarinnar væru hlutir í eigu Reita nú 4.252.695 hlutir eða 0,57% af hlutafé félagsins eins og það verður skráð eftir lækkunina.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.