|
|||
![]() |
|||
2016-04-01 10:59:31 CEST 2016-04-01 10:59:31 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNýherji hf. – Kaupréttaráætlun starfsmannaÍ gær var gengið frá kaupréttaráætlun starfsmanna félagsins og dótturfélaga í samræmi við samþykkt aðalafundar 4. mars sl. (sjá meðf.). Kaupréttur á hlutum í Nýherja hf. samkvæmt áætlun þessari nær til allra fastra starfsmanna samtæðunnar. Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í þremur áföngum á þremur árum frá gerð kaupréttarsamnings. Hver starfsmaður getur að hámarki keypt hluti á grundvelli þessarar áætlunar fyrir kr. 600.000 á ári og að lágmarki kr. 10.000 á ári. Kaupverð hluta skal vera vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu heila viðskiptadaga fyrir samningsdag sem er 31. mars 2016. Kaupréttaráætlun þessi var staðfest af ríkisskattstjóra 17. mars sl. og er í samræmi við 8. tölulið laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Alls gerðu 364 starfsmenn kaupréttarsamning skv. áætlun þessari um 38.327.016 hluti á genginu 17,095. Eigin hlutir Nýherja eru í dag 171.169. |
|||
|