2016-04-01 11:16:01 CEST

2016-04-01 11:16:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 17. mars 2016 var samþykkt að
veita stjórn heimild til kaupa á eigin hlutum í félaginu með framkvæmd
endurkaupaáætlunar, sbr. II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um
innherjaupplýsingar og markaðssvik. Stjórn TM hefur á grundvelli fyrrgreindrar
samþykktar aðalfundar félagsins tekið ákvörðun um endurkaup á eigin hlutum í
þeim tilgangi að lækka hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd
af Kviku hf. sem tekur þar með allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum
og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Fjöldi hluta sem keyptur skal samkvæmt
endurkaupaáætluninni verður að hámarki 24.000.000 hlutir, en það jafngildir
3,2% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði
aldrei meiri en 500 milljónir króna. Kaupin verða framkvæmd í áföngum með þeim
skilyrðum að kaup hvers dags mega að hámarki vera 25% af meðaltali daglegra
viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2016 en það
jafngildir að dagleg kaup megi að hámarki vera 908.788 hlutir. Endurgjald fyrir
hvern hlut skal ekki nema hærra verði en nemur síðustu óháðu viðskiptum eða
hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði, hvort sem reynist hærra. Viðskipti
félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina skulu tilkynnt í
samræmi við lög og reglugerðir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar
aðalfundur félagsins 2017 verður haldinn ef kaupum samkvæmt áætluninni er ekki
lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. 



Reykjavík,  1. apríl 2016.

Tryggingamiðstöðin hf.