|
|||
![]() |
|||
2016-04-01 22:09:31 CEST 2016-04-01 22:09:31 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - Niðurstöður hluthafafundaHB Grandi hf – Niðurstöður aðalfundar haldinn 1. apríl 2016Aðalfundur samþykkti samhljóða ársreikning félagsins Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 1. apríl 2016 samþykkir að greidd verði 1,70 kr. á hlut í arð vegna ársins 2015, alls að fjárhæð 3.083.219.829 kr. Arðurinn verður greiddur 29. apríl 2016. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 1. apríl 2016 og arðleysisdagur því 4. apríl 2016. Arðsréttindadagur er 5. apríl 2016, arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá í lok arðsréttindadags. Meðfylgjandi tillaga að starfskjarastefnu var samþykkt Sjá viðhengi Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 240.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut. Kjör stjórnar Kjöri stjórnar var frestað samkvæmt úrskurði fundarstjóra til framhaldsaðalfundar sem haldinn skal innan mánaðar og boðað verður til samkvæmt samþykktum. Kosning endurskoðanda Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2016 verði Deloitte ehf. Eftirfarandi tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum var samþykkt Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þáttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutabréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar. |
|||
|