2016-07-22 23:53:53 CEST

2016-07-22 23:53:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Breytt aðferðafræði matsfyrirtækisins Fitch færir lánshæfismat langtímaskuldbindinga í innlendum gjaldmiðli til samræmis við lánshæfismat erlendra skuldbindinga til langs tíma


Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hélt í vikunni matsfundi innan fyrirtækisins
þar sem endurskoðað var lánshæfismat á langtímaskuldbindingum í innlendum
gjaldmiðli fyrir lönd þar sem mismunur er á langtímaeinkunn í erlendum og
innlendum gjaldmiðli. Þessi endurskoðun er til þess að gæta samræmis vegna
breytinga á viðmiðum fyrir lánshæfi sem tilkynntar voru af matsfyrirtækinu hinn
26. maí 2016. Samhliða þessari breytingu var gefið út nýtt lánshæfismat fyrir
skammtímaskuldbindingar í innlendum gjaldmiðli. 

Í ljósi hinna nýju viðmiða hefur Fitch lækkað lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs
Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í innlendum gjaldmiðli til samræmis við
einkunn fyrir langtímaskuldbindingar í erlendum gjaldmiðli í BBB+ með stöðugum
horfum. Einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendum og innlendum
gjaldmiðli er staðfest F2. Lánshæfiseinkunn fyrir langtímaskuldbindingar í
erlendum gjaldmiðli er BBB+ með stöðugum horfum eins og staðfest var hinn 15.
júlí sl.  Einkunn Ríkissjóðs Íslands er áfram rökstudd með öflugum
efnahagslegum grunnstoðum, bættum horfum í ríkisfjármálum, ytri stöðu og sterku
stofnanakerfi. 

Samsvarandi breyting verður gerð á lánshæfismati  annarra landa þar sem mat á
langtímaskuldbindingum í innlendum gjaldmiðlum var skör hærra en mat
fyrirtækisins á langtímaskuldbindingum í erlendum gjaldmiðlum. 

Meðfylgjandi er fréttatilkynning Fitch