|
|||
2014-08-20 18:03:25 CEST 2014-08-20 18:03:42 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - ÁrsreikningurFjarskipti hf. : Stöðugur rekstur og mikilvægum áföngum náðÁrshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir 2. ársfjórðung ársins 2014 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 20. ágúst 2014. * Tekjur jukust um 1% á fjórðungnum - Tekjuaukning á fyrri helmingi ársins 2% * Framlegð hækkaði um 6% á fjórðungnum - Framlegðarhækkun 9% á fyrri helmingi ársins * Kostnaður vegna forstjóraskipta í maí nam 53 m.kr. * EBITDA ársfjórðungsins nam 671 m.kr. og lækkaði um 8% milli ára - EBITDA á fyrri helmingi ársins hækkaði um 3% * 210 m.kr. hagnaður á 2. ársfjórðungi - Hagnaðaraukning á fyrri helmingi ársins 49% Stefán Sigurðsson, forstjóri:"Rekstur Vodafone á 2. ársfjórðungi var ágætur, sérstaklega þegar tekið er tillit til mikillar innri vinnu tengdum öryggismálum og ISO 27001 vottun félagsins og kostnaðar sem féll til á tímabilinu vegna forstjóraskipta. Samhliða styrkingu innviða voru mikilvæg skref stigin á ýmsum sviðum á tímabilinu. Nýjar vörur voru innleiddar og áfram var haldið með fjárfestingar í kerfum sem eru mikilvæg fyrir tekjuöflun Vodafone til framtíðar. Félagið hefur þannig tekið forystu í 4G þjónustu með markvissri fjárfestingu í farsímakerfinu og á sama tíma styrkt verulega sjónvarps- og útvarpsdreifikerfi Vodafone sem mun á árinu ná til 99,8% landsmanna. Þessar fjárfestingar eru mikilvægur grundvöllur framtíðar tekjusköpunar félagsins." [HUG#1849875] |
|||
|