|
|||
2008-10-11 18:38:00 CEST 2008-10-11 18:52:06 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirMoody's gefur Orkuveitu Reykjavíkur lánshæfiseinkunnina A1Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfismat Orkuveitu Reykjavíkur úr Aa2 í A1. Þá verður fyrirtækið áfram til skoðunar með tilliti til hugsanlegrar lækkunar. Helsta ástæða breytingarinnar á matinu er, að því er kemur fram í frétt Moody's, versnandi ástand á íslenskum fjármálamarkaði og versnandi efnahagsástand, sem endurspeglast í lækkun á lánshæfismati ríkisins úr Aa1 í A1. Orkuveita Reykjavíkur býr því við sama lánshæfismat og íslenska ríkið eftir breytinguna í dag. Frétt Moodys er í viðhengi. |
|||
|