2017-06-15 20:03:50 CEST

2017-06-15 20:03:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til átján, tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 21 tilboð upp á 3.400 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.580 milljónir kr.

Alls bárust 6 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 600 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,75% - 4,95%.  Öllum tilboðum í 5 mánaða víxilinn var hafnað að þessu sinni.

Alls bárust 12 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.420 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,62% - 4,95%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.300 milljónir á 4,75% flötum vöxtum.

Alls bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 380 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,90% - 5,10%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 280 milljónir á 4,95% flötum vöxtum.

Engin tilboð bárust í 18 mánaða víxilinn.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. júní.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.