|
|||
2008-11-12 10:07:09 CET 2008-11-12 10:08:09 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirMarel Food Systems hf. semur um viðskiptavakt við Nýja Glitni banka hf.Marel Food Systems hf. hefur gert samning við Nýja Glitni banka hf. (Glitnir) um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins á Nasdaq OMX Nordic Exchange Iceland (Kauphöllin). Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll í hlutabréf Marel Food Systems (MARL) að lágmarki 200.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði. Samningurinn tekur gildi í dag, er ótímabundinn en uppsegjanlegur með tveggja vikna fyrirvara. |
|||
|