|
|||
2012-08-31 10:36:09 CEST 2012-08-31 10:37:09 CEST SÄÄNNELTY TIETO Spölur ehf. - ÁrsreikningurÁrshlutauppgjör 1. janúar 2012 til 30. júní 2012-- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2012 til 30. júní 2012 nam kr. 33,9 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2011 til 30. júní 2011 nam 53,1 m.kr. Hagnaður Spalar ehf. eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2012 til 30. júní 2012 nam 66,5 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 30,6 m.kr. -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 655 mkr. (2010:600 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu 1. október 2010 til 31. desember 2011 og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2011 eins og lánasamningar gera ráð fyrir. -- Veggjald nam 483 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 435 m.kr. árið áður sem er 11% hækkun. -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 166 m.kr. og hækkar um tæpar 25 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 141 m.kr. -- Afskriftir á tímabilinu námu samtals 58 m.kr. Samanborið við 62 m.kr. frá árinu áður. -- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 2,7 m. kr. -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.079 m.kr. þann 31. desember 2011 í 4.318 m.kr. þann 30. júní 2012. -- Á árinu 2010 veitti Ársreikningaskrá Speli ehf heimild til að breyta reikningsári sínu á þann hátt að árslok hvers uppgjörsárs miðast nú við 31. desember ár hvert í stað 30. september eins og verið hefur. -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu í samræmi við áætlanir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins. Útlit er fyrir að nokkur samdráttur verði í umferð undanfarna 2 mánuði miðað við áætlanir og umferð sömu mánuða síðasta árs, þannig að líkur eru á að núverandi rekstrarár verði að öllu óbreyttu heldur lakara en áætlanir gerðu ráð fyrir. ________________________________________________________________________________ _________________ Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910. |
|||
|