2016-11-22 18:18:23 CET

2016-11-22 18:18:23 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Norðurþing - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Norðurþing 2017 og þriggja ára áætlun 2018-2020


Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2017 var samþykkt á sveitarstjórnarfundi
í dag. Rekstrarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 54 milljónir. Jafnframt
var lögð fram þriggja ára áætlun 2018-2020. 

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til
B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta
eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Dvalarheimi aldraðra sf., Félagslegar íbúðir,
Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélagið Hvammur ehf.,
Sorpsamlag Þingeyinga ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðsstreymi á árinu 2017 verður veltufá frá rekstri A og
B hluta um 480 milljónir og fjárfestingahreyfingar um 970 milljónir. Munar þar
mestu um gatnagerð, slökkvistöð og framkvæmdir við höfnina vegna
innviðauppbygginar fyrir iðnað á Bakka. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði
ný lán vegna framkvæmdanna upp á 445 milljónir og afborganir lána verði um 230
milljónir. Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá 1.004 milljónir í
lok árs. 

Húsavík 22. nóvember 2016

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Aðalbjarnarson, fjármálastjóri í síma 464
6100