|
|||
2011-05-10 18:26:48 CEST 2011-05-10 18:27:49 CEST REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - ÁrsreikningurÁrsreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2010Afkoman betri en áætlanir gerðu ráð fyrir Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð 988 milljónum krónum betri en áætlunin. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi bæjarins fyrir árið 2010. Hann fer til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag. Með áframhaldandi hagræðingu og útsjónarsemi tókst að halda uppi þjónustustigi í bænum á árinu. Tekjur bæjarfélagsins urðu heldur hærri en áætlað var en íbúum fjölgaði um 383 milli ára, eða í 30.697 í árslok 2010. Aðrir þættir sem hafa áhrif á jákvæða rekstrarútkomu eru gengishagnaður erlendra langtímalána sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun og lækkun lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir hækkun skuldbindingarinnar. Útgjaldaliðir vegna félags-, fræðslu- og atvinnumála urðu hins vegar nokkuð hærri en áætlað hafði verið, en það skýrist helst af því efnahagsástandi sem ríkti á árinu. Má þar nefna að auknu fé var ráðstafað til atvinnuskapandi verkefna, einkum til sumarvinnu ungmenna. Eigið fé bæjarfélagsins í árslok 2010 nam rúmlega 14 milljörðum króna en var 10,4 milljarðar árið á undan. Eiginfjárhlutfallið fór upp í 24%. Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, forstöðumaður almannatengsla Kópavogsbæjar, í síma: 696 0663. |
|||
|