2009-07-21 14:47:16 CEST

2009-07-21 14:48:03 CEST


Islandic English
Alfesca hf. - Yfirtökutilboð

- Mat á tilboði - frá Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital Fjárfestingarbanka hf. vegna yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland ehf. í Alfesca hf. -


Í tengslum við yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf.
hefur Saga Capital Fjárfestingarbanki hf. unnið greinargerð um álit sitt á fram
komnu yfirtökutilboði og skilmálum þess, fyrir hönd stjórnar Alfesca og er það
dagsett 21. júlí 2009. 

Stjórn Alfesca hf. ákvað að fela Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital
Fjárfestingarbanka gerð meðfylgjandi greinargerðar í samræmi við 7. mgr. 104.
gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. 

Álitsgerð Fyrirtækjaráðgjafar Saga Capital Fjárfestingarbanka efh. fylgir hér
með sem viðhengi. 

Samantekt niðurstaðna

Fjárfestar eru eindregið hvattir til að kynna sér efni yfirtökutilboðs Lur
Berri Iceland ehf. sem og efni greinargerðar þessarar í heild sinni, forsendur
hennar og fyrirvara. 

Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital telur að tilboðsgengið 4,5 kr. á hlut fyrir
hluti í Alfesca hf. sé sanngjarnt fyrir hluthafa Alfesca hf., sér í lagi ef
litið er á kennitölur sambærilegra fyrirtækja á markaði og núvirt sjóðstreymi.
Einnig er tekið er mið af erfiðum aðstæðum á íslenskum fjármálamarkaði og horft
er til yfirtökutilboða á Íslandi undanfarin ár. 

Tilboðsverðið svarar til hæsta verðs sem samstarfsaðilarnir hafa greitt fyrir
hluti í Alfesca síðustu sex mánuði. Það er 32,4% hærra en síðasta viðskiptaverð
þann 28. maí 2009 sem var sá dagur sem tilkynnt var um fyrirhugað samstarf og
samstarfsaðilanna um stjórn og rekstur Alfesca hf. Ennfremur er tilboðsverðið
25,3% hærra en meðaldagslokaverð síðustu sex mánuði þar á undan. 

Fram kemur í yfirtökutilboðinu að stefnt er að afskráningu hlutabréfa Alfesca
hf. á NASDAQ OMX Iceland, en það kann að hafa áhrif á verð hlutabréfanna,
verðmyndun þeirra, með hvaða hætti verður unnt að eiga viðskipti með þau í
framtíðinni sem og þrengingu á hópi fjárfesta sem heimild hafa til
fjárfestingar í hlutabréfunum.