|
|||
2015-03-09 22:00:16 CET 2015-03-09 22:00:51 CET REGULATED INFORMATION N1 hf. - Boðun hluthafafundarN1 hf : Endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2015 - Breytingatillögur frá Gildi lífeyrissjóðiMeðfylgjandi er uppfærð dagskrá aðalfundar N1 hf. árið 2015. Tvær tillögur fyrir fundinn bárust frá hluthafanum Gildi lífeyrissjóður. Annars vegar er gerð tillaga að breytingu á 2. málsl. 1. mgr. 9. gr. samþykkta félagsins sem felur í sér að geta þarf um heimildir félagsins til kaupa á eigin hlutum í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins. Hins vegar er gerð breytingartillaga á tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum, sem felur í sér að heimildin skuli takmörkuð við þau tilvik að verið sé að koma á viðskiptavakt eða setja upp formlega endurkaupaáætlun. Tillögur Gildis lífeyrissjóðs ásamt greinargerð er meðfylgjandi auk áður birtra tillagna stjórnar. [HUG#1900680] |
|||
|