2014-07-08 17:18:23 CEST

2014-07-08 17:19:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Ríkissjóður gefur út skuldabréf í evrum


Ríkissjóður Íslands hefur í dag gengið frá samningum um útgáfu skuldabréfa að
fjárhæð 750 milljónir evra,  sem jafngildir um 116 milljörðum króna. Er þetta
fyrsta opinbera útgáfa ríkissjóðs í Evrópu síðan 2006. 

Skuldabréfin bera 2,5% fasta vexti og eru gefin út til 6 ára á
ávöxtunarkröfunni 2,56%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam
eftirspurn um 2 milljörðum evra.  Fjárfestahópurinn er vel dreifður og
samanstendur aðallega af fagfjárfestum frá Evrópu og Bandaríkjunum. 

Umsjón var í höndum Citibank, Barclays, Deutsche Bank og J.P. Morgan.

„Útgáfa skuldabréfanna markar tímamót og er afar jákvætt skref í endurreisn
íslensks efnahagslífs.  Ríkissjóður er að sýna fram á fulla burði til þess að
fjármagna skuldir sínar á Evrópumarkaði, þeim markaði sem mestu skiptir fyrir
fjármögnun ríkja.  Kjör ríkissjóðs á erlendum mörkuðum hafa batnað verulega
síðustu mánuði, sem gefur okkur færi á að lækka vaxtagjöld ríkissjóðs og því
nýtum við tækifæri nú þegar aðstæður skapast fyrir hagstæða lántöku.  Með
útgáfunni er greitt fyrir bættum aðgangi fyrir innlenda aðila sem sækja í
erlent lánsfé,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. 

Viðbrögð fjárfesta voru mjög góð og eftirspurn var nærri þreföld upphæð
útgáfunnar. „Eftirspurn markaðsaðila eftir skuldabréfunum sýnir tiltrú þeirra á
íslensku efnahagslífi og þeim árangri sem náðst hefur í ríkisfjármálum,“ segir
Bjarni Benediktsson. 

Andvirði útgáfunnar verður varið til þess að nýta heimild til forgreiðslu
eftirstöðva tvíhliða lána til Íslands frá Norðurlöndunum, sem tekin voru í
tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 2008. „Það
að við fáum nú á markaði u.þ.b. 1% lægri vexti en okkur stóðu til boða við
fjármögnun efnahagsáætlunarinnar sýnir stóraukið traust á Íslandi,“ segir
fjármála- og efnahagsráðherra. 

Útgáfa skuldabréfanna er í samræmi við stefnu í lánamálum ríkisins þar sem
markmiðin eru meðal annars þau að tryggja aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum
til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta. 



Reykjavík, 8. júlí 2014