2009-06-30 11:56:20 CEST

2009-06-30 11:57:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning vegna útgáfu íbúðabréfa


Þann 20. apríl 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun varðandi útlán,
útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að
gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á öðrum ársfjórðungi ársins, en
samtals 
nemur heildarútgáfa fjórðungsins 6,95 milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn
hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á öðrum
ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á öðrum ársfjórðungi
en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á
tímabilinu. 

Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í lok 29. viku ársins 2009.