|
|||
![]() |
|||
2015-04-29 19:59:49 CEST 2015-04-29 20:00:43 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Útgáfa sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum verðtryggðra sértryggðra skuldabréfa. Flokkurinn ISLA CBI 20 var stækkaður um 380 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Nýr ellefu ára flokkur, ISLA CBI 26, var boðinn út og seldust þar 2.360 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Heildarstærð ISLA CBI 20 útgáfunnar er orðin 3,20 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út átta flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 36,55 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Heildareftirspurnin í útboðinu var 4,32 ma. kr., en 63% tilboða var tekið. Stefnt er á töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. maí næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1916964] |
|||
|