|
|||
![]() |
|||
2015-10-26 16:51:12 CET 2015-10-26 16:52:13 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 43. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 261.297 eigin hluti fyrir 21.957.108 kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 19.10.2015 14:42 9.248 82,60 763.885 4.785.277 -------------------------------------------------------------------------------- 20.10.2015 10:09 2.049 82,10 168.223 4.787.326 -------------------------------------------------------------------------------- 22.10.2015 15:01 250.000 84,10 21.025.000 5.037.326 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 261.297 21.957.108 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 5.037.326 hluti í félaginu sem samsvarar 14,82% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 360.174.295 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,67% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|