|
|||
![]() |
|||
2013-04-23 16:04:14 CEST 2013-04-23 16:05:15 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirTilkynning um undirritun á kaupsamningi við fasteignafélagEftir lokun markaðar 14. febrúar s.l. sendi Reginn hf., frá sér tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum. Öllum fyrirvörum hefur verið eytt hvað varðar kaup á fasteignafélaginu, Almenna byggingafélagið ehf. Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og Almenna byggingafélagsins í dag, 23 apríl. Almenna byggingafélagið á hluta Fellsmúla 26, í Reykjavík. Stærð eignarhlutar félagsins er 1.546 m2. Með þessum kaupum hefur verið gengið frá kaupum á 3 af 4 fasteignafélögum í tengslum við ofangreind viðskipti. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við fasteignafélagið VIST ehf. Verið er að vinna áfram í því máli og verður sú niðurstaða tilkynnt þegar hún liggur fyrir. Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|