2013-04-23 18:15:54 CEST

2013-04-23 18:16:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2012


Afkoma Kópavogsbæjar umfram væntingar

Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 186 milljónir króna á árinu 2012 en
áætlun gerði ráð fyrir 102 milljónum króna. Útkoman var því betri sem nemur 84
milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar sem lagður
verður fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag. 

Tekjur voru 20.576 milljónir króna á árinu en bein rekstrargjöld 15.741 milljón
króna. Þannig var hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir 4.835 milljónir
króna. Sjóðstreymi var mjög sterkt og nam veltufé frá rekstri tæpum 2,8
milljörðum króna. Er það vel yfir áætlun. 

Hagnaður vegna lóðaúthlutana á árinu 2012 var tæpar 800 milljónir króna en ekki
hafði verið gert ráð fyrir lóðaúthlutunum í áætlun ársins. Til samanburðar var
hagnaður af lóðaúthlutunum á árinu 2011 rétt rúmar 335 milljónir króna. 

Þessi afgangur verður þrátt fyrir gengistap, óhagstæða verðbólguþróun og hækkun
 lífeyrisskuldbindinga. Gengistap erlendra lána var 445 milljónir króna og
gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga var 209 milljónir umfram áætlun. 

Rekstur málaflokka gekk vel og var nálægt áætlun. Greidd laun á árinu voru
aðeins 0,6% yfir áætlun en laun eru veigamesti þátturinn í rekstrarútgjöldum
sveitarfélagsins. 

„Ársreikningurinn sýnir bætta stöðu Kópavogsbæjar sem gefur góð fyrirheit um
framhaldið. Mikill styrkur er fólginn í því að rekstraráætlanir málaflokka
skuli standast og að á þær sé hægt að treysta. Hjá Kópavogsbæ starfar hæft fólk
sem hefur lagst á árarnar til að ná settu marki. Einnig er mikilvægt að
uppgreiðslu erlendra lána lýkur nánast á þessu ári og verður sá áhættuþáttur
því óverulegur héðan í frá,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. 

Skuldahlutfall samstæðu Kópavogsbæjar var um síðustu áramót 206% en var um 242%
þegar hæst var árið 2010. Markvisst er stefnt að því að lækka skuldir bæjarins.
Gert er ráð fyrir því að skuldahlutfallið verði komið undir lögbundið 150%
hámark fyrir árið 2018 en aðlögunartíminn til að ná því hlutfalli er til 2023. 

Íbúum í Kópavogi heldur áfram að fjölga. Þeir voru 31.676 þann 1. desember 2012
og hafði fjölgað um 1,7% frá fyrra ári eða 537. 



Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, sími:
696 0663

KOP-Samsta-2012.pdf