|
|||
![]() |
|||
2017-12-18 19:51:30 CET 2017-12-18 19:51:41 CET REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Viðskipti félags með eigin bréfSkeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 50. viku 2017, keypti félagið 9.992.400 eigin hluti fyrir 66.799.194 kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð 14.12.2017 10:05:47 4.996.200 6,7 33.474.540 15.12.2017 15.11:25 4.996.200 6,67 33.324.654 Samtals 9.992.400 66.799.194 ------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 7. nóvember 2017. Skeljungur hefur nú keypt samtals 69.946.800 hluti í félaginu sem samsvarar 32,50% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 498.121.140 krónum sem samsvarar 71,16% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur á nú samtals 69.946.800 hluti eða 3,25% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e. 10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071. [] |
|||
|