2014-06-05 15:36:09 CEST

2014-06-05 15:37:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður aðalfundar Haga hf. 5. júní 2014


Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Hilton
Reykjavík Nordica þann 5. júní 2014 kl. 09:00. Tillögur fundarins voru
samþykktar svohljóðandi: 



  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda var
lagður fram og samþykktur samhljóða. 



  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 1,00 krónu á hlut var
samþykkt samhljóða. Arðsréttindadagur verður 11. júní 2014, arðleysisdagur 6.
júní 2014 og útborgunardagur 27. júní 2014. 



  1. Breyting á samþykktum félagsins (dagskrárliður 4)

Tillaga stjórnar Haga hf. um breytingu á grein 2.1 í samþykktum félagsins var
lögð fram og samþykkt samhljóða. Grein 2.1 hljóðar nú svo breytt: 

Hlutafé félagsins er kr. 1.171.502.190. - einn milljarður eitt hundrað sjötíu
og ein milljón fimm hundruð og tvö þúsund eitt hundrað og níu tíu krónur - að
nafnverði og skiptist í jafn marga hluti að nafnverði 1 króna hver. 



  1. Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 5)

Tillaga stjórnar Haga hf. um óbreytt laun stjórnarmanna, þ.e. stjórnarformaður
fær greitt kr. 500.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 250.000,- á mánuði var
samþykkt samhljóða. 



  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)

Fyrir fundinum lá tillaga að starfskjarastefnu félagsins, en hún var óbreytt
frá áður samþykktri starfskjarastefnu. Starfskjarastefnan var samþykkt
samhljóða. 



  1. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 7)

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar:

            Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969

            Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369

            Salvör Nordal, kt. 211162-5119

            Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529

            Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729



Fimm framboð bárust og var því sjálfkjörið. Þrír frambjóðendur voru áður í
stjórn félagsins. Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs. Salvör Nordal og Sigurður Arnar Sigurðsson voru kosin í þeirra
stað. 

Samþykkt var samhljóða að endurskoðunarskrifstofan KPMG ehf., kt. 590975-0449,
verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.