2014-06-05 15:54:38 CEST

2014-06-05 15:55:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
CCP hf. - Fyrirtækjafréttir

Skipulagsbreytingar hjá CCP hf.


CCP hf tilkynnir í dag um skipulagsbreytingar í útgáfustarfsemi fyrirtækisins.
Í kjölfar breytinganna eru lögð niður 49 störf hjá fyrirtækinu. 

Skipulagsbreytingarnar eru liður í áherslubreytingum CCP í vöruþróun, þar sem
lögð er áhersla á þróun og útgáfu tölvuleikja fyrir einn og sama leikjaheiminn;
EVE veröldina. Skipulagsbreytingarnar varða útgáfustarfsemi CCP og hafa ekki
áhrif á leikjaþróun fyrirtækisins. 

Af þeim störfum sem lögð eru niður eru 27 þeirra í höfuðstöðvum fyrirtækisins í
Reykjavík. CCP veitir öllum fráfarandi starfsmönnum stuðning og aðstoð við
atvinnuleit. 



Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri:

“Það er okkur þungbært að kveðja hæfileikaríkt starfsfólk okkar og vini. Fólk
sem hefur lagt sitt af mörkum til fyrirtækisins og skilað mjög góðri vinnu við
útgáfustarfsemi þess. 

En í ljósi breyttra aðstæðna, og stefnubreytinga í vöruþróun fyrirtækisins, er
ég sannfærður um að þessar skipulagsbreytingar muni til lengri tíma litið
styrkja og efla starfsemi CCP.” 



Frekari upplýsingar:

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Netfang: eldar@ccpgames.com
Sími 869 8179