2013-01-18 12:45:00 CET

2013-01-18 12:45:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 14 0314 OG RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.310 m.kr. að nafnverði. 2
tilboðum var tekið fyrir 1.525 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,450 (3,42%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 22 1026:

Alls bárust 33 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.860 m.kr. að nafnverði. 31
tilboði var tekið fyrir 5.660 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,530 (6,60%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22.
janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 23. janúar 2013.