|
|||
2013-12-11 13:12:05 CET 2013-12-11 13:13:06 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag sölu á LBANK CB 16, óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq OMX Iceland. Útgáfan var stækkuð um 700.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,30%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.220.000.000 kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 1.920.000.000 kr. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland þann 18. desember 2013 en Straumur fjárfestingabanki mun sinna viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar: Fjárfestatengill: Kolbrún Guðlaugsdóttir, ir@landsbankinn.is, og í síma 410 4014. |
|||
|