2009-01-29 12:56:35 CET

2009-01-29 12:57:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landic Property hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður hluthafafundar Landic Property haldinn 29. janúar 2009


Hluthafafundur Landic Property hf. var haldinn í dag 29. janúar 2009. 

Fyrir fundinn voru lagðar eftirfarandi tillögur, sem allar voru samþykktar:

1.	Tillaga um breytingu á 4.1. gr. samþykkta félagsins um að stjórnarmönnum
verði fækkað úr sjö í fimm. 

2.	Eftirfarandi tillaga um heimild stjórnar til þess að vinna áfram að
stefnumótun og endurskipulagningu félagsins. 
Eins og fram kom í tilkynningu frá félaginu þann 5. desember sl. þá vinnur
félagið að stefnumótun vegna mjög erfiðra rekstrarskilyrða. Í framhaldi af
fyrirliggjandi niðurstöðu af stefnumótunarvinnunni, ákveður hluthafafundur
Landic Property hf. haldinn 29. janúar 2009, að veita stjórn Landic Property
heimild til áframhaldandi stefnumótunarvinnu og endurskipulagningar á rekstri
félagsins. Endurskipulagningin getur m.a. leitt til sölu eigna sem ekki falla
að nýrri stefnu félagsins. Heimild þessi gildir út árið 2009.