|
|||
2010-12-22 15:53:55 CET 2010-12-22 15:54:56 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun kaupir hlut Orkuveitu Húsavíkur í ÞeistareykjumLandsvirkjun og Orkuveita Húsvíkur ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur (3,2%) og Þingeyjarsveit (4,0% rúm). Fyrir hlutinn eru greiddar tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara sem greitt er í áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf. Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands. Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram. Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins. Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning um nýtingu raforku á umráðvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að stuðlað verði að því svo sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji orkufreka starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og Landsvirkjun eftir atvikum. Frekari upplýsingar veita: Bergur Elías Ágústsson stjórnarformaður Orkuveitu Húsavíkur í síma 464-6100 og Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma 515-9000 eða 849-2122. |
|||
|