|
|||
2013-03-20 17:34:05 CET 2013-03-20 17:35:06 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga ohf. – Undirritun AðalmiðlarasamningaÍ dag, 20. mars 2013, var skrifað undir samninga milli Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði í flokkum LSS150224 og LSS150434. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 26. mars 2013 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf. og Straumur fjárfestingabanki. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|