2012-03-14 13:25:31 CET

2012-03-14 13:26:31 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Norræni fjárfestingarbankinn lækkar vexti á lánum Orkuveitunnar


Reykjavík, 2012-03-14 13:25 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Norræni
fjárfestingarbankinn hefur ákveðið að lækka vexti á lánum Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) vegna þess árangurs sem náðst hefur í rekstri. Fulltrúar bankans hafa
fylgst náið með framvindu þeirrar aðgerðaáætlunar sem OR og eigendur
fyrirtækisins samþykktu síðastliðið vor. Allir þættir hennar eru á áætlun.
Framvindan er kynnt reglulega í tengslum við árshlutauppgjör OR. 
Áformað er að kynna næstu framvinduskýrslu samhliða birtingu ársreiknings
samstæðu OR í lok vikunnar. 
Stjórnendur OR líta á þetta sem merki um aukinn trúverðugleika fyrirtækisins á
alþjóðlegum fjármálamarkaði. Síðari hluta árs 2011 samdi OR um áhættuvarnir við
hollenska ING bankann, sem felur í sér útlánaáhættu fyrir bankann.