2024-04-24 10:41:55 CEST

2024-04-24 10:41:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Nova Klúbburinn hf. - Leiðrétting - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, miðvikudaginn 24. apríl. Léðrétt tilkynning er hér að neðan.


Á aðalfundi Nova Klúbbsins hf. þann 21. mars 2024 var stjórn félagsins veitt heimild til að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.

Stjórn Nova Klúbbsins hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á eigin bréfum. Útgefið hlutafé Nova Klúbbsins er 3.683.966.464 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Endurkaupin nú munu, skv. ákvörðun stjórnar, nema allt að 550 milljónum kr. að kaupverði.

Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, miðvikudaginn 24. apríl, og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindri fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra.

Íslandsbanki hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770 1090 eða með tölvupósti á thorhallurj@nova.is.