2010-09-15 16:06:02 CEST

2010-09-15 16:07:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Greiðsluerfiðleikar Reykjaneshafnar


Reykjaneshöfn er í vanskilum með gjalddaga 1. maí sl. vegna greiðslu afb. og
vaxta af skuldabréfaflokki nr. RNH08. 

Reykjaneshöfn hefur með aðstoð Reykjanesbæjar staðið í endurfjármögnun á
langtímalánum Reykjaneshafnar, en lánaútboð Reykjanesbæjar hefur enn ekki borið
árangur.
Tafir við uppbyggingu álvers Norðuráls í Helguvík og fleiri verkefna til
atvinnuuppbyggingar í Reykjanesbæ hafa átt sinn þátt í að lánaútboðið bar ekki
árangur, og að lokum neikvæður fréttaflutningur af málefnum Reykjanesbæjar. 

Reykjaneshöfn átti einnig von á tekjum vegna lóðagjalda í Helguvík, sem hafa
enn ekki komið, en eru væntanlegar á næstu vikum.  Þær eru vegna Íslenska
kísilversins ehf., Norðuráls ofl.  Einnig hafa óskir Reykjaneshafnar um
ríkisstyrk við hafnarframkvæmdir í Helguvík ekki borið árangur. 

Búið er að greiða hluta vanskilanna og semja um fullnaðar uppgjör innan tveggja
mánaða.