|
|||
2008-07-30 08:11:00 CEST 2008-07-30 08:11:43 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Afkoma fyrri árshelmings 2008Afkoma Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. á fyrri helmingi ársins 2008 Hagnaður samstæðu eftir skatta 20,8 milljónir evra* Helstu niðurstöður fyrri árshelmings 2008 * Hagnaður eftir skatta nam 20,8 milljónum evra. Hagnaður fyrir skatta nam 4,3 milljónum. * Rekstrartekjur námu 81,5 milljónum evra. * Tekjur af þjónustu við viðskiptamenn, þ.e. hreinar vaxtatekjur og hreinar þóknunartekjur, jukust um 12,0% miðað við sama tímabil árið 2007 og námu 103,8 milljónum evra. * Tap af fjárfestingum nam 25,1 milljón evra. * Rekstrarkostnaður nam 62,0 milljónum evra. * Kostnaðarhlutfall tímabilsins var 76,1%. * Hagnaður á hlut nam 0,002 evrum. * Arðsemi eigin fjár var 2,7%. * Heildareignir í lok tímabilsins námu 6,2 milljörðum evra, sem er 12,7% minna en í ársbyrjun. * Eignir í stýringu námu 1,4 milljörðum evra í lok tímabilsins. * Eiginfjárhlutfall (CAD) var 25,4% í lok tímabilsins. Eiginfjárþáttur A var 23,2%. * Lausafjárstaða bankans er sterk og er bankinn fjármagnaður í meira en 365 daga. Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2008 * Tap eftir skatta nam 1,4 milljónum evra. Tap fyrir skatta nam 20,2 milljónum. * Rekstrartekjur námu 15,3 milljónum. * Tekjur af þjónustu við viðskiptamenn námu 49,8 milljónum; þar af voru hreinar vaxtatekjur 23,9 milljónir og hreinar þóknunartekjur 25,9 milljónir. * Tap af fjárfestingum nam 36,0 milljónum. * Rekstrarkostnaður hélt áfram að lækka og nam 26,9 milljónum. * Tekjuskattur var jákvæður um 18,7 milljónir; þar af nemur einskiptisleiðrétting 10,6 milljónum. * Gengi fyrir hagnað/tap er meðalgengi ISK/EUR á fyrri hluta ársins: 109,14. Gengi fyrir efnahagsreikning er ISK/EUR í lok tímabilsins: 124,30 William Fall, forstjóri Straums"Okkur hefur tekist að stýra bankanum í gegnum erfiða tíma með því að koma okkur upp stöðugum tekjustofnum þrátt fyrir óróa á mörkuðum, standa vörð um fjárhagslegan styrk bankans, verja lausafjárstöðuna, draga úr áhættu og skera niður kostnað. Á sama tíma höfum við haldið áfram að efla starfsemina og leita nýrra tækifæra. Tap af tilteknum fjárfestingum á öðrum ársfjórðungi er áminning um hve þýðingarmikið var auka breiddina í starfsemi bankans eins og gert hefur verið. Og það getur ekki yfirskyggt þann árangur sem við höfum náð í þeim efnum, eins og birtist í því að tekjur af þjónustu við viðskiptamenn á fyrri helmingi ársins jukust um 12% á milli ára." Milljónir evra H1 2008 H1 2007 Q2 2008 Q1 2008 Q4 2007 Tekjur af þjónustu við 103,8 92,7 49,8 53,9 59,8 viðskiptamenn* Rekstrartekjur 81,5 240,7 15,3 66,2 56,5 Rekstrarkostnaður (62,0) (42,3) (26,9) (35,1) (46,7) Hagnaður fyrir skatta 4,3 191,0 (20,2) 24,4 1,4 Hagnaður 20,8 163,4 (1,4) 22,3 (0,6) Kostnaðarhlutfall (%) 76,1 17,6 Hagnaður á hlut (evrur) 0,002 0,017 Arðsemi eigin fjár á 2,7 23,8 ársgrundvelli (%) Eiginfjárhlutfall (CAD) (%) 25,4 28,4 Nánari upplýsingar veita: Stephen Jack, fjármálastjóri stephen.jack@straumur.net +44 7885 997570 Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs georg.andersen@straumur.net +354 858 6707 Uppgjörskynning í Reykjavík Kynningarfundur verður haldinn fyrir hluthafa og markaðsaðila miðvikudaginn 30. júlí 2008 á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2. Forstjóri og fjármálastjóri Straums fjárfestingabanka kynna afkomu bankans og svara spurningum. Kynningin verður á ensku. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vef bankans, www.straumur.com/webcast. Eftir fundinn verður hægt að nálgast kynningarefni á vef Straums, www.straumur.com, og á vef OMX Nordic Exchange á Íslandi, www.omxnordicexchange.is. Fundurinn hefst klukkan 9.30 árdegis en boðið verður upp á léttar veitingar frá klukkan 9:00. Dagskrá: 9:00 Boðið upp á léttan hádegisverð 9:30 William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna afkomu bankans og svara spurningum 10:30 Fundarlok Fundarstjóri: Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs. |
|||
|