|
|||
2009-06-05 21:11:28 CEST 2009-06-05 21:12:37 CEST REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirVel heppnuðu hlutafjárútboði til fagfjárfesta lokiðHlutafjárútboði Marel Food Systems hf. til fagfjárfesta lauk í dag, föstudaginn 5. júní. Góð þátttaka var í útboðinu og bárust tilboð um kaup á alls 26.567.963 hlutum. Stjórn félagsins ákvað að taka öllum tilboðum, sem voru að stærstum hluta frá lífeyrissjóðum, á verðinu 54 krónur á hlut. Heildarsöluandvirði útboðsins var 1.434.670.002 krónur. sem svarar til 8,3 milljóna evra. Stjórn Marel hefur í kjölfarið samþykkt að auka hlutafé félagsins um 26.567.963 hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 4,6% og er heildarhlutafé Marel 606.868.275 hlutir eftir útboðið. Nýi Kaupþing banki hf. (Kaupþing) hafði umsjón með útboðinu fyrir hönd Marel Food Systems en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar lausafjárstöðu félagsins, ásamt því að auka sveigjanleika og minnka rekstraráhættu. Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems, lýsti yfir ánægju með góðar undirtektir fagfjárfesta í útboðinu. „Við erum þakklát því trausti sem fjárfestar og bankar hafa sýnt félaginu með þátttöku sinni í þessu útboði, nýlegu skuldabréfaútboði og endurfjármögnun langtímaskulda félagsins. Á undanförnum vikum höfum við styrkt efnahag félagsins og tryggt stöðuleika í fjármögnun og horfum nú fram á veginn til þeirra tækifæra sem framundan eru.“ Gjalddagi hinna nýju hluta er fimmtudaginn 11. júní næstkomandi. Marel mun óska eftir því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá Nasdaq OMX Iceland eigi síðar en mánudaginn 15. júní næstkomandi. Marel Food Systems er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á tækjum og kerfum til matvælavinnslu. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.700 manns um allan heim og starfrækir fyrirtækið skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum. Velta af kjarnastarfsemi fyrirtækisins árið 2008 nam 548 milljónum evra. Nánari upplýsingar veita: Theo Hoen, forstjóri Marel, sími +354 563-8000 Arnar Ragnarsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings, í síma +354 444-7000 |
|||
|