|
|||
2008-05-16 18:15:15 CEST 2008-05-16 18:16:05 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBenedikt Gíslason ráðinn framkvæmdastjóri16. maí 2008 Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") hefur ráðið Benedikt Gíslason í stöðu framkvæmdastjóra yfir Markaðsviðskiptum, Eigin viðskiptum og Fjárfestingarsviði, að meðtöldu Straumur Capital Management (SCM). Benedikt var áður framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta hjá FL Group. Áður en hann gekk til liðs við FL í apríl á liðnu ári var hann framkvæmdastjóri Eigin viðskipta hjá Straumi. Þar áður starfaði hann meðal annars við markaðsviðskipti hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Íslandsbanka. Benedikt hefur CSc gráðu í verkfræði frá Háskóla Íslands og er löggiltur verðbréfamiðlari."Við fögnum því að fá Benedikt aftur til liðs við okkur," segir William Fall forstjóri Straums. "Umfangsmikil reynsla hans á innlendum sem erlendum mörkuðum felur í sér þýðingarmikla viðbót fyrir bankann.""Ég er afar ánægður með að ganga til liðs við Straum á ný," segir Benedikt Gíslason. "Bankinn hefur þróast mikið á skömmum tíma og ég tel að við eigum mörg spennandi sóknarfæri." Núverandi framkvæmdastjórar yfir Eigin viðskiptum Straums, Flemming Bendsen og Fredrik Sjöstrand, gegna áfram stöðum sínum innan bankans en munu í framtíðinni heyra undir Benedikt. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi s. 858 6778 netfang: olafur.gudnason@straumur.net |
|||
|