|
|||
![]() |
|||
2016-09-02 12:12:22 CEST 2016-09-02 12:12:22 CEST SÄÄNNELTY TIETO Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirÚtboð OR á skuldabréfum og víxlum 9. septemberReykjavík, 2016-09-02 12:11 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Föstudaginn 9. september 2016 verða boðnir til sölu víxlar til tæplega 7 mánaða fyrir allt að 1.360 milljónir króna í flokki Orkuveitu Reykjavíkur (OR) OR300317 og skuldabréf fyrir allt að 4,5 milljarða króna í tveimur flokkum, OR090524 og OR090546, sem eru verðtryggð með jöfnum greiðslum til tæplega 8 og 30 ára. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf og víxlar verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð. Nánari upplýsingar: Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. Sími 444-7337 Netfang verdbrefamidlun@arionbanki.is Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR Sími 516-6100 Netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR Sími 516-6100 Netfang ingvar.stefansson@or.is |
|||
|