2012-04-13 10:32:17 CEST

2012-04-13 10:33:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 27. apríl 2012 og hefst kl. 16:00.


Á dagskrá fundarins verða:



  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
     hlutafélagalaga.
  3. Önnur mál, löglega upp borin.



Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. 



Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.



Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar. 



Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. 



Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.