2014-08-20 21:00:00 CEST

2014-08-20 21:00:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. gera samninga við Íslandsbanka og Landsbankann um frekari viðskiptavakt


Fjarskipti hf. (VOICE) hafa gert samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins, skráðum í NASDAQ OMX Iceland (kauphöll).
Samningurinn tekur gildi í dag, 20. ágúst 2014, og kemur í stað eldri samnings
milli sömu aðila, sem greint var frá í tilkynningu Fjarskipta hf. til
kauphallarinnar dags. 2. desember 2012. Tilgangur samningsins er að efla
viðskipti með hlutabréf í Fjarskiptum hf. í kauphöllinni í því skyni að
seljanleiki hlutabréfanna aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun
hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Íslandsbanki skal dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf í
Fjarskiptum hf. í viðskiptakerfi kauphallarinnar, að lágmarki kr. 400.000 að
nafnvirði á gengi sem Íslandsbanki ákveður hverju sinni. Sé gengið að tilboði
Íslandsbanka skal bankinn leggja fram nýtt tilboð eins fljótt og mögulegt er þar
til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag er náð. Munur á kaup- og
sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði
ekki meira en 3%. Hámarksmagn viðskipta dag hvern sem Íslandsbanki er
skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera 3.000.000 hlutir eða meira að
nafnvirði í sjálfvirkri pörun innan dags. Séu eigin viðskipti bankans með bréf
félagsins yfir þessu marki innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup-
og sölutilboða þann daginn.


Fjarskipti hf. (VOICE) hafa gert samning við Landsbankann um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins , skráðum í NASDAQ OMX Iceland (kauphöll).
Samningurinn tekur gildi þann 1. september næstkomandi. Eldri samningur
Fjarskipta hf. og Landsbankans um viðskiptavakt, sem greint var frá í
tilkynningu hins fyrrnefnda til kauphallarinnar dags. 2. desember 2012, fellur
úr gildi samhliða gildistöku nýja samningsins.

Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í
hlutafé Fjarskipta, að lágmarki kr. 400.000 að nafnvirði á gengi sem
Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 10 mínútna
eftir að þeim er tekið að fullu. Munur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera
meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Ef
verðbreyting á hlutabréfum Fjarskipta hf. innan dags nær 10% er Landsbankanum
heimilt að tvöfalda hámarks verðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann
daginn. Hámarksmagn sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á
hverjum degi er 2.400.000 hlutir.

[HUG#1850138]