2016-10-27 11:35:09 CEST

2016-10-27 11:35:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Mosfellsbær - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2017 og næstu þrjú ár


Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2017 og næstu þrjú ár þar á eftir var
lögð fram í bæjarráði Mosfellsbæjar í morgun. Bæjarráð vísaði áætluninni til
fyrri umræðu í bæjarstjórn sem mun fara fram 9. nóvember nk. 

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur nemi 9.542 millj. kr., gjöld fyrir
fjármagnsliði nemi 8.331 millj. kr. og fjármagnsliðir 653 m.kr. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 201 m.kr. Áætlað er að
framkvæmdir nemi 746 millj. kr. og að íbúum fjölgi um 3,4% milli ára. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að framlegð verði 12,7% og að veltufé frá rekstri
verði jákvætt um 924 mkr. eða um 10%.  Gert er ráð fyrir að skuldir sem
hlutfall af tekjum muni lækka og að skuldaviðmið skv. sveitastjórnarlögum verði
106% í árslok 2017. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700.