|
|||
2015-03-12 14:56:12 CET 2015-03-12 14:57:12 CET REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - HluthafafundirVÍS - Maríanna Jónasdóttir dregur framboð sitt tilbakaÍ tilkynningu Maríönnu Jónasdóttur til VÍS í dag kemur fram að hún hafi ákveðið að draga framboð sitt til stjórnar félagsins tilbaka. Kemur fram að ákvörðunin sé tekin í kjölfar umræðu sem framboð hennar hafi skapað og að höfuðmáli skipti fyrir hag hvers fyrirtækis að trúverðugleiki ríki um stjórn þess. Samkvæmt samþykktum Vátryggingafélags Íslands hf. skipa fimm einstaklingar aðalstjórn félagsins. Það verður því sjálfkjörið í aðalstjórn félagsins. Aðalstjórn Ásta Dís Óladóttir Bjarni Brynjólfsson Guðrún Þorgeirsdóttir Helga Jónsdóttir Steinar Þór Guðgeirsson Þar sem einungis tveir hafa boðið sig fram til varastjórnar félagsins er ljóst að þeir eru einnig sjálfkjörnir. Varastjórn Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir Davíð Harðarson |
|||
|