2012-05-10 12:01:45 CEST

2012-05-10 12:02:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Leiðrétting vegna tilkynningar um stækkun tveggja flokka sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki vill koma á framfæri leiðréttingu á tilkynningu frá 3. maí 2012
vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa.

Rétt er að skuldabréfaflokkurinn ISLA CBI 19 er stækkaður sem nemur ISK
630.000.000 en ekki 635.000.000. Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er því nú
ISK 2.460.000.000 og  hefur Íslandsbanki alls gefið út sértryggð skuldabréf að
upphæð ISK 8.810.000.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember
2011. Heildareftirspurn í útboðinu var ISK 2.180.000.000 og var 68% tilboða
tekið, að upphæð ISK 1.480.000.000.

Fyrirhugað er að bréfin verði tekin til viðskipta þann 10. maí. Viðskiptavakt
fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni
og tilnefnir jafnframt sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is  og í síma 440 3678.


[HUG#1610926]