2013-08-30 11:02:53 CEST

2013-08-30 11:03:54 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Árshlutauppgjör 1. janúar 2013 til 30. júní 2013


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2013 til 30.
     júní 2013 nam kr. 120,6 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2012 til
     30. júní 2012 nam 33,9 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2013 til 30. júní 2013 nam 109,9
     m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 66,5 m.kr.



  -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem
     verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka
     lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið
     sterk. Um 627 mkr. (2011:655 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á
     tímabilinu 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 og nauðsynlegt
     umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2012 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.



  -- Veggjald nam 508 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 483 m.kr.
     árið áður sem er 5% hækkun.



  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 177
     m.kr. og hækkar um rúmar 11 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 166 m.kr.



  -- Afskriftir á tímabilinu námu samtals 59 m.kr. Samanborið við 58 m.kr. frá
     árinu áður.



  -- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 38,4 m. kr.



  -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 3.821 m.kr. þann 31. desember 2012 í 4.022
     m.kr. þann 30. júní 2013.



  -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.





Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu aðeins
meiri en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Sama
gildir fyrir árið í heild miðað við síðasta ár. 



Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.