2014-04-11 13:45:00 CEST

2014-04-11 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.200 m.kr. að nafnverði. 4
tilboðum var tekið fyrir 6.500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,090 (4,64%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 20 0205:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.700 m.kr. að nafnverði. 5
tilboðum var tekið fyrir 1.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,950 (6,25%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 15.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 16. apríl 2014.