|
|||
2022-05-25 22:13:06 CEST 2022-05-25 22:13:06 CEST REGULATED INFORMATION Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlumÚtgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 4.640 milljónir króna. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 3.000 milljónum. Þar af eru 2.900 milljónir í þriggja mánaða víxilinn með 6,29% vöxtum og 100 milljónir í 6. mánaða víxilinn á 6,55%. Tilboðin samsvara 1,38% álag á 3M Reibor og 1,36% álag 6M Reibor. Greiðslu- og uppgjörsdagur er á fimmtudaginn 2. júní 2022. Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. Nánari upplýsingar veitir: Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4227 eða rvg@urseafood.is |
|||
|