|
|||
2007-11-01 16:14:37 CET 2007-11-01 16:14:37 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir- Ívar Ragnarsson tekur við starfi sviðsstjóra Fjármálasviðs ÍbúðalánasjóðsÍvar Ragnarsson hefur tekið við starfi sviðsstjóra Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs frá og með deginum í dag, 1. nóvember 2007. Ívar mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn sjóðsins. Jóhann G. Jóhannsson, sem gegndi starfi sviðsstjóra Fjármálasviðs lét af því starfi 11. september s.l. Ívar Ragnarsson er með meistaragráðu í fjármálum að mennt og starfaði áður á fjárstýringarsviði hjá Glitni hf. frá maí á þessu ári. Þar áður var hann sérfræðingur við Fjármálasvið Íbúðalánasjóðs frá febrúar 2005 til maí 2007. Nánari upplýsingar veitir: Hallur Magnússon, sviðsstjóri Þróunarsviðs, Sími: 569 6911 hallur@ils.is |
|||
|