|
|||
2011-07-01 12:22:12 CEST 2011-07-01 12:23:12 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar júlí - desember 2011Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 6.300 mkr vegna framkvæmda. Á fyrrihluta ársins 2011 hefur skuldabréfaflokkurinn RVK 09 1 verið stækkaður um 2.440 mkr að nafnverði. Á síðari hluta ársins 2011 stendur til að gefa út skuldabréf í þeim flokki að nafnverði 3.860 mkr. Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 11.770 mkr að nafnverði 1 júlí 2011. Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 30 júní sl. eftirfarandi tillögu að útgáfuáætlun vegna stækkunar skuldabréfaflokksins RVK 09 1 það sem eftir lifir árs 2011. Útboð munu því fara fram í eftirfarandi vikum: Ágúst: vika 34. September: vika 38. Október: vika 43. Nóvember: vika 47. Desember: vika 51. Lántaka í hvert sinn nemi allt að 1.000 milljónum króna, enda sé á því þörf og ásættanleg kjör í boði. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|