2009-03-05 15:16:42 CET

2009-03-05 15:17:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
BYR - sparisjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Jón Þorsteinn Jónsson lætur af stjórnarstörfum


Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður, hefur tilkynnt stjórn Byrs, að hann
sjái sig knúinn til að láta tímabundið af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn
fram að næsta aðalfundi hans.  Við stjórnarformennsku Jóns Þorsteins tekur Jón
Kristjánsson sem verið hefur varaformaður stjórnar Byrs. 
Í tilkynningu Jóns Þorsteins til stjórnar sparisjóðsins, segir um ástæðu
þessarar ákvörðunar, að félög nátengd honum standi nú í samningum við
lánadrottna. Á meðan á því samningaferli standi, muni það krefjast allrar
athygli hans og tíma og hann telji af þeim sökum óheppilegt að starfa í stjórn
fjármálafyrirtækis á sama tíma. 
Jón Þorsteinn hefur verið stjórnarformaður sparisjóðsins frá árinu 2004. Áður
hafði hann setið í stjórn hans  frá árinu 2001. 
Stjórn Byrs lýsir fullu trausti á Jón Þorstein og þakkar honum það góða starf
sem hann hefur unnið af heilindum fyrir Byr, jafnt við uppbyggingu
sparisjóðsins sem á umbrotatímum undanfarinna mánuða og óskar honum velfarnaðar
í þeim verkefnum sem framundan eru. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri, í síma 575
4000.