|
|||
2009-08-27 11:35:31 CEST 2009-08-27 11:36:32 CEST REGULATED INFORMATION Bakkavör Group hf. - ÁrsreikningurAfkoma Bakkavör Group á öðrum ársfjórðungi og fyrri helmingi 2009Aukin arðsemi, sterkt sjóðstreymi á ný og jákvæðar rekstrarhorfur Helstu niðurstöður: • EBITDA* hagnaður eykst á öðrum ársfjórðungi um 5,7%, 7,9 milljarðar króna (37,3 m.punda) samanborið við 7,5 milljarða króna (35,3 m.punda) á sama ársfjórðungi 2008 • Bætt EBITDA* hlutfall á öðrum ársfjórðungi, 8,7% samanborið við 8,3% á öðrum ársfjórðungi 2008 • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi 5,6 milljarðar króna (26,4 m.punda), samanborið við tap að fjárhæð 5 milljarða króna (23,5 m.punda) á öðrum ársfjórðungi 2008, verulegur viðsnúningur sem nemur 10,5 milljörðum króna (50 m.punda) • Hagnaður á hlut 1,2 pens á öðrum ársfjórðungi samanborið við 1,1 pens tap á sama ársfjórðungi 2008 • Áframhaldandi aukning í sölu á ferskum tilbúnum matvælum félagsins í Bretlandi, 7%** aukning á öðrum ársfjórðungi sem einkum má rekja til aukinnar sölu í flokki tilbúinna rétta • Handbært fé frá rekstri fyrir skatta, vexti og einskiptiskostnað vegna hagræðingaraðgerða 9,9 milljarðar króna (46,4 m.punda) á öðrum ársfjórðungi 2009, 76% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra • Gert er ráð fyrir áframhaldandi rekstrarbata á þriðja fjórðungi ársins og gera stjórnendur nú ráð fyrir 25% aukningu EBITDA* á tímabilinu. Jafnframt gerir EBITDA* áætlun fyrir árið ráð fyrir 20% framlegðaraukningu, að framlegð verði 27,4 milljarðar kr. (130 m.punda) á árinu. Ágúst Guðmundsson, forstjóri: EBITDA* hagnaður félagsins hefur aukist töluvert undanfarið, en eins og áætlanir okkar gerðu ráð fyrir þegar við birtum uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung í maí síðastliðnum eru hagræðingaraðgerðir sem félagið hefur ráðist í farnar að skila töluvert bættum rekstrarárangri. Sjóðstreymi hefur einnig styrkst verulega með aukinni hagkvæmni í rekstri, bættri arðsemi og stýringu veltufjármuna. Við gerum ráð fyrir að sjóðstreymi félagsins haldi áfram að styrkjast á seinni hluta ársins þegar árangur hagræðingaraðgerðanna kemur betur í ljós. Sala félagsins á ferskum tilbúnum matvælum í Bretlandi heldur áfram að aukast og jókst sala tilbúinna rétta, einum af lykilvöruflokkum Bakkavarar, um 10% á tímabilinu. Er þetta til marks um sterka stöðu félagsins og hæfni til að aðlaga framleiðslu að breyttri neysluhegðun. Félagið byggir nú á traustum grunni til áframhaldandi vaxtar afkomu og tekna í framtíðinni og byggir endurskoðuð spá stjórnenda um EBITDA markmið í lok árs á þeim forsendum. Samningaviðræður við helstu lánveitendur móðurfélagsins á Íslandi um endurfjármögnun skulda eru komnar vel á veg. Góður gangur er í viðræðunum og vonumst við til að geta tilkynnt um niðurstöður viðræðna innan skamms. Þessar viðræður fylgja í kjölfar samninga um endurfjármögnun allra rekstrarfélaga samstæðunnar í mars síðastliðnum, sem tryggir þeim rekstrarfjármögnun næstu þrjú árin. Frekari upplýsingar veita: Ágúst Guðmundsson, forstjóri Sími: 550 9700 Richard Howes, fjármálastjóri Sími: 550 9700 Snorri Guðmundsson, fjárfestatengsl Sími: 550 9710/ 858 9710 *EBITDA að undanskildum einskiptiskostnaði vegna hagræðingar ** Sala leiðrétt m.t.t. framleiðslu sem var hætt vegna hagræðingar |
|||
|