|
|||
2013-10-24 16:43:30 CEST 2013-10-24 16:44:30 CEST REGULATED INFORMATION Fljótsdalshérað - FyrirtækjafréttirLánasamningur vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili á EgilsstöðumBæjarráð Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann 23. október 2013 að ganga til samninga við Lánasjóð Sveitarfélaga um fjármögnun byggingar á nýju hjúkrunarheimli. Samningur verður lagður til staðfestingar í bæjarstjórn þann 6. nóv. nk. Fjárhæð samnings nemur all að 1.500 millj. kr. sem er áætlaður framkvæmdakostnaður verkefnisins og endurgreiðist á 20 árum. Fyrir liggur samningur við Velferðarráðuneytið um kostnaðarþátttöku ríkisins sem greiðir sitt framlag (85%) skv. grunnverði byggingarkostnaðar í formi leigugreiðslna til næstu 40 frá því að bygging hefur verið tekin í notkun. Fjárfesting þessi er hluti af langtímaáætlun sveitarfélagsins til 10 ára sem samþykkt var á árinu 2012 og var því inn í forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árin 2013 - 2017. Nánari upplýsingar veita: Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri |
|||
|